Hreyfitilboð
Jóga fyrir byrjendur
- Svæði:110
- Í umsjón:astabard@simnet.is, astabard@simnet.is,
- Verð (frá):17.500 kr. á námskeið
- Frír prufutími: Já
- Áreynslustig:Létt
- Inni/úti:Innandyra
- Tegund hreyfingar:Jóga/slökun
- Aldur:Allir
- Kyn:Konur og Karlar
- Breyta upplýsingumTil baka
Þetta er 10 tima námskeið, einu sinni í viku a mán. kl 18.00-19.10. Á byrjendanámskeiðum er farið ítarlega í helstu jógastöður og öndunaræfingar. Kenndar eru líkamsstöður sem auka styrk, liðleika og jafnvægi.Rík áhersla er á djúpslökun, að hægja á öndun, kyrra hugann og slaka á vöðvum.Einbeiting og innri maður styrkist. Námsgögn kr. 1500
-
Tímasetning:
Mánudaga 18:00-19:10 -
Skráningar krafist:
Já - Ásta Bárðardóttir
astabard@simnet.is
8448588
http://jogajord.is
Ásta Bárðardóttir jógakennari er menntaður kennari frá KHÍ. Hún stofnaði Jóga Jörð í janúar 2009. Ásta lauk jógakennaranámi frá Jógakennaraskóla Kristbjargar Kristmundsdóttur árið 2003. Nú kennir hún klassískt jóga, jóga gegn streitu, djúpslökun og vefjagigtarjóga í samvinnu við Styrk Sjúkraþjálfun að Höfðabakka 9. Síðastliðin ár hefur Ásta farið til Indlands og til USA tvisvar á ári til að dýpka jógaástundunina. Hún hefur einnig stundað nám hjá Richard Miller PhD í irest yoga nidra djúpslökun og hugleiðslu . Hún kenndi jóga og djúpslökun fyrir Þraut endurhæfingu í árabil, eldri borgurum jóga í stólum, hefur verið með sumarjóga fyrir krakka með skemmtilegum þrautum og leikjum s.l. sumur og á vetrum krakka- og unglingajóga. Þá hefur hún kennt starfsfólki Háskólans í Reykjavík jóga í mörg ár. Að auki hefur hún unnið smærri tímabundin verkefni á vinnustöðum fyrir ýmsar stofnanir og fyrirtæki. - Jóga Jörð
astabard@simnet.is
8448588
Klassískt jóga fyrir alla aldurshópa. Vefjagigtarjóga líka ætlað stirðum og verkjuðum. Djúpslökun, jóga nidra og hugleiðsla. Byrjendajóga. Krakka- og unglingajóga.
http://jogajord.is
Skógarás 4 -
Skráningu lýkur þann :
13. mars 2017
Leiðbeinandi
Í umsjón