Sjóvá Kvennahlaup ÍSí

25. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið laugardaginn 14. júní 2014. Þema ársins í ár er að benda á mikilvægi hreyfingar fyrir alla.

ÍSÍ vill hvetja konur á öllum aldri til þess að setja sér markmið og hefja undirbúning 5 vikum fyrir hlaup. Martha Ernstdóttir sjúkraþjálfari og áhugamanneskja um heilbrigðan og skynsamlegan lífsstíl, hefur útbúið æfingaáætlanir og annað stuðningsefni sem allir geta nýtt sér, byrjendur og lengra komnir. Hægt er að nálgast allt efni inn á nýrri heimasíðu verkefnisins www.kvennahlaup.is en þar er einnig að finna lista yfir göngu- og hlaupahópa sem taka þátt í verkefninu sem er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.