Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2018
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið laugardaginn 2.júní nk. í 29. skipti. Undirbúningur er í fullum gangi og verður hlaupið víðsvegar um landið að vanda.
Á síðasta ári komu um 12 þúsund hlauparar á öllum aldri saman á 91 hlaupastað innanlands og erlendis. Fjölmennustu hlaupin eru í Garðabæ, Mosfellsbæ og Akureyri en hægt verður að finna upplýsingar um alla hlaupastaði þegar nær dregur hlaupinu.
Nánari upplýsingar um Kvennahlaupið má finna á heimasíðu hlaupsins og Facebook-síðu þess.