Lífshlaupið hefst 31. janúar 2018

Lífshlaupið - landskeppni í hreyfingu, verður ræst í ellefta sinn miðvikudaginn 31. janúar næstkomandi. Vinnustaðakeppnin stendur frá 31. janúar - 20. febrúar og grunnskóla- og framhaldsskólakeppnin frá 31. janúar - 13. febrúar. Einstaklingskeppnin stendur yfir allan ársins hring og er þátttaka í öllum keppnum ókeypis.

Opnað verður fyrir skráningu nokkrum vikum áður en að keppnin hefst og verður það nánar auglýst þegar að nær dregur. Það er því um að gera að vera tilbúinn þegar þar að kemur og hefja keppnina af krafti.

Hægt er að lesa sér til um Lífshlaupið, reglur keppninnar, myndir o.fl. á  heimasíðunni www.lifshlaupid.is.

Allar upplýsingar má nálgast hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í síma 514-4000 eða með fyrirspurn á netfangið lifshlaupid@isi.is

Við bendum einnig á Facebook-síðu Lífshlaupsins og einnig Instagram-síðuna.